Author Page

Kynntu þér Jónu, efnishöfundinn okkar hjá Casino.com

Um Jónu G.

Jóna G. er nafnið á bak við fjölda íslenskra spilavítaumsagna, þýðinga og leiðbeininga sem margir netspilarar hafa treyst á undanfarin ár. Hún hefur starfað sem þýðandi og greinahöfundur innan fjárhættuspilageirans á netinu síðan 2018 og þekkir því heim netspilavíta bæði utan frá – sem notandi – og innan frá, sem faglegur textasmiður.

Jóna er fædd og uppalin í Reykjavík en búsett í Noregi, þar sem hún býr með manninum sínum í sveit, umkringd ró, náttúru og dýrum sem hún sinnir af mikilli ástríðu. Þegar hún er ekki að túlka flókin bónuskerfi og skilmála yfir á skýrt og læsilegt íslenskt mál, finnst henni fátt betra en að mála og njóta hæglætis sveitalífsins.

You can follow Jona on:

LinkedIn logo

Fagreynsla Jónu

Frá árinu 2018 hefur Jóna byggt upp sérhæfða reynslu í öllu sem tengist efni fyrir spilavíti á netinu. Hún hefur: 

casino-games
Gert ítarlegar úttektir á spilavítum
casino-games

Þýtt heimasíður spilavíta, skilmála og bónussíður

casino-games

Kannað virkni og notendavæni farsímaappa tengdum spilun, þjónustu og bónusum

Með fjölda viðskiptavina og verkefna að baki þekkir hún vel hvað skiptir máli fyrir íslenska lesendur: skýrleiki, nákvæmni og heiðarleg umfjöllun. Hún er vön að brjóta niður flókin hugtök eins og veðkröfur, greiðslumáta og ábyrga spilun þannig að bæði nýliðar og reyndir fjárhættuspilarar skilji nákvæmlega hvað er í gangi áður en þeir taka ákvarðanir.

Ég elska að viðra hundana mína í skóginum sem er rétt hjá heimili okkar. Þar er endalaus ró og friður, þar sem við rekumst á dádýr og íkorna. Þess á milli hef ég gaman af að mála og svo er ég í háskóla þannig að það er nóg að gera.

Skrif Jónu

Fyrir Jónu snýst gott efni um jafnvægi milli upplýsinga og lestrarflæðis. Hún trúir því að lesendur eigi skilið að fá heiðarlega og gagnsæja mynd af spilavítum, bónusum og skilmálum – án þess að þurfa að vaða gegnum flókinn, þurran texta eða endalaust markaðsefni. Forgangsefni hennar er: • Að vera hreinskilin um kosti og galla • Skrifa á einföldu og skiljanlegu máli • Halda stíl og tón léttum, jafnvel þegar efnið er tæknilegt • Setja ábyrga spilun í forgrunn Markmiðið er alltaf að lesandinn fari frá grein eða þýðingu með auknum skilningi á því sem hann las og geti tekið ákvarðanir með hliðsjón af efninu. Jóna leggur sig fram við að brúa bilið á milli spilavítanna og spilaranna, þar sem hlutverk hennar er að tryggja að upplýsingarnar sem fara yfir brúna séu skýrar, sannar og nytsamlegar.

Tölur Jónu

  • 6
    Starfað sem greinahöfundur/þýðandi frá árinu 2018
  • Fjöldi greina: 57
  • Fjöldi umsagna: 43
  • 150-plus
    Fjöldi þýðinga: 172
  • Fjöldi verkefna innan fjárhættugeirans: 56

Sérsvið Jónu

Umsagnir um netspilavíti, þýðingar fyrir netspilavíti, bónusar og hvernig þeir virka, ábyrgar spilavenjur / ábyrg spilun

Jóna sérhæfir sig í nokkrum lykilsviðum innan fjárhættuspilageirans:

pay

Spilavítisumsagnir: Hlutlausar, gagnrýnar og vel uppbyggðar umsagnir sem fara yfir leikjaval, bónusa, öryggi, þjónustu og ábyrga spilun.

pay

Þýðingar: Nákvæmar þýðingar á heimasíðum, öppum, bónusskilmálum og hjálparefni, þar sem bæði málfarsleg gæði og fagleg nákvæmni eru í forgangi.

pay

Bónusar og hvernig þeir virka: Skýrar útskýringar á velkomandabónusum, hleðslutilboðum, ókeypis snúningum, Prize Drops og VIP-kerfum – með áherslu á veðkröfur, takmarkanir og raunverulegt virði fyrir fjárhættuspilara.

pay

Ábyrg spilun: Greinar og efni sem minna á mikilvægi þess að spila innan eigin marka, útskýra verkfæri eins og innborgunar- og tímamörk, sjálfútilokun og hvar hægt er að leita sér aðstoðar ef spilun fer úr böndunum.

Sameiginlegt fyrir öll þessi svið er fagleg nálgun Jónu: hún skrifar fyrir fólk – ekki fyrir kerfi – og markmiðið er alltaf að gera netspilun öruggari, skiljanlegri og aðeins sanngjarnari fyrir íslenska lesendur.

Það er eitthvað við spennuna í póker, spennan sem fylgir því að  horfa á spilin detta á borðið og allt veltur á þessu eina spili. En stærsti vinningurinn var ekki í póker. Lukkan lék við mig einu sinni  og það var rétt fyrir utanlandsferð með eiginmanninum og ég vann í 250.000 kr happdrættisleik, sem er stærsti vinningurinn minn hingað til. Þessi óvænti glaðningur gerði utanlandsferðina enn skemmtilegri.

chips-cards

Algengar spurningar með Jónu

  • Hvaða spilavítisleik finnst þér skemmtilegast spila?

    Ég er sökker fyrir póker og rúllettu annað slagið og líka spilakassaleikjum, sér í lagi leikjum sem eru með skemmtilegum þemum.

  • Hvað gerirðu þegar þú ert ekki að skrifa?

    Nýt samverunnar með manninum mínum í frítíma, annars er ég líka í námi sem er krefjandi og dýrin mín þarfnast einnig athygli minnar, þannig að það er nóg við að vera.

  • Hvað er oft vanmetinn eiginleiki sem getur ráðið úrslitum um gæði netspilavítis?

    Ég tel að “ábyrg spilun” sé eitt það mikilvægasta verkfæri innan spilavíta á netinu. Það og að sjálfsögðu að geta sýnt fram á að viðkomandi vettvangur sé að vinna með öll tilskilin leyfi sem þarf til að reka sanngjarnt spilavíti. Ekki klikka á þessu, krakkar. Tékkið alltaf á leyfinu.

  • Hvernig heldurðu þér uppfærðri um fréttir og þróun í greininni?

    Með því að fylgjast vel með markaðnum. Fjárhættuspil eru í sífeldri þróun, sér í lagi í netheimum. Því fylgist ég vel með hugbúnaðarframleiðendum, vefsíðum sem skrifa um netspilavíti, LinkedIn o.s.frv. Þannig get ég veitt uppfærðar upplýsingar til lesenda okkar.